5 km. hlaup
Felstir sem eru í sæmilegu formi geta skokkað 5 km. Túrinn verður þó ánægjulegri ef þú nærð að undirbúa þig aðeins. Regluleg hreyfing í nokkrar vikur þar sem hlaup/skokk eða önnur þrekþjálfun er hluti af prógramminu er góður undirbúniningur fyrir 5 km hlaup.
10 km. hlaup
Það þarf svolítinn undirbúning til að hlaupa 10 km. Flestum sem eru í sæmilegu formi nægir þó nokkurra vikna undirbúningur. Ef þú hefur verið að skokka í sumar og ferð létt með að hlaupa 5-6 km. eru 10 km. raunhæfur kostur fyrir þig. Gættu þess að fara rólega af stað og þú ferð létt með að hlaupa 10 km. í góðum félagsskap. Þó þú þurfir e.t.v. að ganga einhvern hluta leiðarinnar þá stóðstu þig betur en þeir sem ekki höfðu sig af stað.
Hálft maraþon (21,1 km.)
Það þarf góðan undirbúning til að geta hlaupið hálft maraþon. Nokkurra mánaða, eða jafnvel ára, reglulegar hlaupaæfingar eru það sem til þarf. Ef þú ferð létt með að hlaupa 10 km. og hefur nokkrum sinnum farið aðeins lengra án þess að verða mjög eftir þig er hálfa maraþonið raunhæfur kostur fyrir þig. Ef þú ert ekki viss um að komast vegalengdina núna er hálft maraþon e.t.v. rétta markmiðið fyrir næsta haust.



