Stígandi

Stígandi er opinn hópur hlaupara sem hafa gaman af að hlaupa utan malbiksins. Hópurinn hittist einu sinni í viku yfir sumarið og hleypur um stígana í Kjarnaskógi og þar fyrir utan eru stundum skipulagðar ferðir um aðra stíga á Eyjafjarðarsvæðinu. Hópurinn hefur einnig tekið að sér að aðstoða við viðhald og lagningu nýrra stíga í Kjarnaskógi og er eftir því sem best er vitað eini hlaupahópurinn á íslandi sem á vélsög.

Í sumar verða æfingar í Kjarnaskógi á fimmtudögum kl. 18:15 (Hlaupið frá þjónustuhúsinu/snyrtingunum á neðra bílaplaninu).

Allar nánari upplýsingar um stíganda veitir formaður hópsins, Gunnar Svanbergsson á netfangið gunnar@eflingehf.is

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning