Sagan

UFA hélt fyrsta Akureyrarhlaupið í júlí 1992. Hlaupið bar þá heitið Akureyrarmaraþon en 2003 var heiti þess breytt í Akureyrarhlaup UFA þar sem það þótti villandi að tala um maraþon þegar lengsta vegalengdin var hálft maraþon.

Fyrstu ár hlapsins var hlaupið fram í fjörð en 1994 var hlaupið flutt inn á Akureyrarvöll og hlaupið þaðan þar til 2008 þegar rás og endamark var flutt inn á ráðhústorg og síðan að Átaki 2010. Hlaupaleiðin í hálfmaraþon lá lengi vel fram fjörðin að austanverðu og yfir gömlu leirubrýrnar en var breytt árið 2010 og er nú aftur hlaupið fram í fjörð. Leiðinni í 10 km hlaupinu hefur verið breytt nokkrum sinnum en liggur nú líkt og hálfmaraþonleiðin um eyrina og suður eftir Drottningarbraut.

1998 gerði Martha Ernstsdóttir tilraun til að setja íslandsmet í brautinni, -en bíl hafði verið heitið að launum fyrir íslandsmet. Martha var tæpri mínútu frá metinu, hljóp á 1:12:29 -en íslandsmet hennar er 1:11:40 sett 1996 og stendur enn.
Brautarmet karla á Daníel Smári Guðmundsson 1:16:23 sett 2002.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning