Markmið við allra hæfi

Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa er á allra færi, veldu þér vegalengd og markmið við hæfi og sigraðu sjálfa/n þig.

Að skokka 5 km. Það þarf ekki mikinn undirbúning til að skokka 5 km. Flestir sem hafa verið að hreyfa sig eitthvað og eru með sæmilegt þol geta skokkað 5 km með litlum undirbúningi. Og jafnvel þeir sem hafa lítið verið að hreyfa sig geta á nokkrum vikum náð upp nægilega góðu þoli til að skokka 5 km.
 
Að skokka 10 km. Hefur þú skokkað öðru hvoru í sumar og skokkar jafnvel 6-7 km. hring íhvert skipti? Þá er þetta rétta markmarkið fyrir þig. Farðu rólega afstað og njóttu ferðarinnar.

Að hlaupa 10 km. Skokkar þú eða hleypur reglulega? Ferð létt með að hlaupa 7 km. ogskokkar jafnvel 12 km. eða lengra á góðum degi? Skelltu þér í skóna og hlauptu eins hratt og þú treystir þér til.

Að prófa að hlaupa hálft maraþon. Ertu í góðu formi og langar að taka á því og sjá hvað þú getur? Ef þúhefur hlaupið reglulega undanfarna mánuði finnur ekki fyrir því aðhlaupa 10 km. og hefur prófað að hlaupa 15-17 km. þá er þér óhætt að skrá þig í hálfa maraþonið. Farðu bara ekki of hratt af stað það er betra að eiga eitthvað inni seinni hluta hlaupsins og gefa þá í en að örmagnast á miðri leið.

Að hlaupa hraðar en í fyrra. Ertu ein/n af þeim sem var með í fyrra og hefur hlaupið reglulega eftir það? Nú er tækifæri til að sjá hvort æfingarnar eru að skila árangri. Settu þér tíma að stefna að og kepptu við sjálfa/n þig.

Persónulegt met. Ertu ein/n af þeim sem keppir við klukkuna og sjálfa/n þig í hlaupunum og keppir markvisst að því að bæta tímana þína í algegnustu vegalengdumgötuhlaupa? Leiðin í bæði 10 km hlaupi og hálfa maraþoninu er marflöt og því vænleg tilgóðra afreka.

Að taka stöðuna á forminu. Þorir þú ekki að vera með af því þú veist að þú ert í verra formi en í fyrra eða fyrir fimm árum? Enginn er alltaf í toppformi og lakara form getur átt sér margar skýringar. Það er erfiðast að horfast í augu við það ef leti er eina skýringin, en þá þarftu líka að spyrja sjálfa/n þig hvortþú ert sátt/ur við að vera á niðurleið. Ef þú ert ekki sátt/ur við það er þá ekki kominn tími til að hrista af sér slenið og koma sér af stað aftur? Fæstir sem mæta í hlaupið vita hvaða tíma þú átt og það verður auðveldara fyrir þig að stefna að því í næsta hlaupi að bæta þennan tíma en besta tímann þinn.

Söfnunarárátta. Það er skemmtilegt tómstundagaman að safna hlaupum um víða veröld, byrjaðu hlaupasöfnunina núna, eða bættu Akureyrarhlaupinu í safnið.

Happdrætti. Þátttökunúmerið gildir sem happdrættismiði. Nokkrir veglegir vinningar verða dregnir út á hlaupadag, freistaðu gæfunnar.

Stemning. Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur... orti skáldið og þau orð eruí fullu gildi enn þann dag í dag. Ekki standa hjá og horfa á hina-vertu með.

Á síðunni Byrjandinn er að finna góð ráð til þeirra sem eru að taka sín fyrstu hlaupaspor.

Og á heimasíðu UFA undir Hlaupaleiðir og kort er að finna kort af hlaupaleiðum á Akureyri.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning