Hlaupaleiðir og kort 2011

Rás og endamark í Akureyrarhlaupi Íslenskra verðbréfa verður við Líkamsræktarstöðina Átak við Strandgötu. Hlaupaleiðirnar liggja um eyrina og innbæinn og eru marflatar og vænlegar til góðra afreka.

Götur í 5 km. hlaupi: Hringur á eyrinni hlaupinn tvisvar sinnum. Ræst við Átak, hlaupið niður Strandgötu - Hjalteyrargata - Tryggvabraut - Glerárgata - Strandgata - Hjalteyrargata - Tryggvabraut - Glerárgata - Strandgata og endað við Átak.

Götur í 10 km.hlaupi: Ræst við Átak, hlaupið niður Strandgötu - Hjalteyrargata - Tryggvabraut - suður Glerárgötu og Drottningarbraut - snúið við (snúningspunktur við innkeyrsluna að flugvellinum) og Drottningarbraut hlaupin til baka að Strandgötu og endað við Átak.

Götur í hálfmaraþoni:Ræst við Átak, hlaupið niður Strandgötu - Hjalteyrargata - Tryggvabraut - suður Glerárgötu og Drottningarbraut rúma 5 km lengra en í 10 km - snúið við (snúningspunktur við afleggjarann að Kristnesi) og Drottningarbraut hlaupin til baka að Strandgötu og endað við Átak.


 
kort_af______hlaupalei_640 

 

 

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning