Fyrir hverja er Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa

Megintilgangur Akureryarhlaupsins er að hvetja unga sem aldna til hreyfingar og heilbrigðra lífshátta og skapa tækifæri fyrir almenning að taka þátt í skemmtilegum íþróttaviðburði. Svipaðar uppákomur hafa unnið sér sess víða í heiminum á síðustu áratugum og hleypa lífi í menningu staðanna. Bæjarbúar rífa sig upp úr sófanum, reima á sig skóna sigla af stað í iðandi mannhafinu og stemningin er slík að enginn lætur sig vanta að ári. Hér heima hefur Reykjavíkurmaraþon og Kvennahlaupið unnið sér slíkan sess og vita allir sem reynt hafa hve skemmtilegan svip þessar uppákomur setja á bæjarlífið.

Uppákomur sem þessar verða mörgum hvatning til að byrja að hreyfa sig og taka upp heilbrigðari lífshætti en það er jú einmitt það sem að er stefnt. En hlaupin laða líka að og þeir sem komnir eru á bragðið ferðast gjarnan landshlutanna á milli til að taka þátt í skemmtilegum hlaupum og þannig getur gott hlaup orðið til að laða að ferðafólk og lífga upp á bæjarlífið.

Því miður eru margir feimnir við að taka þátt í uppákomum sem þessari og telja að þær séu bara fyrir keppnisfólk í toppformi. Fljótt á litið lítur jú út fyrir að helstu hetjur hlaupsins séu þeir sem koma fyrstir í mark og stærsta afrekið sé að hlaupa á sem skemmstum tíma. En flestir eru í raun og veru fyrst og fremst að keppa við sjálfa sig og þau markmið sem þeir hafa sett sér og stærsti sigurinn er að ná þessum markmiðum. Afrek og hetjuskapur eru því afstæð hugtök í þessu sambandi. Segja má að mestu hetjurnar séu þeir sem ekki hafa hreyft sig lengi en skella sér samt með í hlaupið, þrátt fyrir óttan um að springa á miðri leið, koma lang síðastir í mak eða verða aðhlátursefni fyrir hallærislegan útbúnað og þunglamalegan hlaupastíl.

Ef þú hefur áhuga á að bæta eigin heilsu og taka þátt í lifandi stemningu þá er Akureyrarhlaupið eitthvað fyrir þig.
Akureyrarhlaup er á færi allra og hver og einn getur valið sér vegalengd og hraða við hæfi.

Hér eru uppástungur að nokkrum góðum markmiðum.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning