Þessi æfingaáætlun er ætluð þeim sem hafa verið að hlaupa,
ráða vel við að hlaupa 7-8 km og hafa hlaupið 10 km. áður.
Gert er ráð fyrir fjórum æfingum í viku og þar af
einni svolítið erfiðri æfingu þar sem tekið er vel á. Hér er reiknað með að
mánudagar, þriðjudagar, fimmtudagar og laugardagar séu hlaupadagar en að
sjálfsögðu getur hver og einn raðað þeim á vikuna eftir eigin hentugleika. Gott
er að taka aðra hreyfingu með 1-2x í viku en halda inni a.m.k. einum hvíldardegi.



