10 km áætlun fyrir byrjendur

Þessi æfingaáætlun er ætluð þeim sem hafa lítið æft hlaup en langar að hlaupa 10 km. í Akureyrarhlaupi KEA.

Gert er ráð fyrir þremur æfingum í viku og hér eru þær settar á mánudaga, fimmtudaga og laugardaga –en hver og einn getur að sjálfsögðu raðað þeim á vikuna eftir eigin hentugleika. Þrjú skipti í viku er hæfilegt magn fyrir flesta sem eru að byrja en sumir þola þó að bæta við fjórða skiptinu. Til að auka fjölbreytni og minnka hættu á meiðslum er þó frekar mælt með því að fólk taki aðra hreyfingu með ef það vill æfa oftar en þrisvar í viku. Ganga, hjólreiðar og sund eru t.d. góð tilbreyting frá hlaupunum.

Sækja áætlun.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning