Vorið er komið
sunnudagur 4.maí.08 21:27 - Lestrar 541
Nú er rétti tíminn til að taka fram hlaupaskóna og skokka út í sumarið. Akureyrarhlaup KEA fer fram eftir tæpar 7 vikur en á þeim tíma má bæta þol og úthald umtalsvert með réttum æfingum. Hér á síðunni má finna hlaupaprógröm og ráðlegginar fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna sem nýtast þeim sem vilja koma sér í form fyrir hlaupið. Í bænum starfa einnig þrír hlaupahópar sem allir taka vel á móti nýliðum.



