Fréttir

Veðrið lék við hlaupara

Akureyrarhlaup KEA fór fram í morgun í stilltu og björtu veðri. Hlauparar víðs vegar að af landinu mættu til leiks og hlupu 3 - 21,1 km. Úrslitin verða birt hér á síðunni síðar í dag.
Þau ófyrirgefanlegu mistök urðu að hlauparar í hálfu maraþoni voru látnir hlaupa 3-400 metrum of langt. Skýringin liggur í því að þar sem verið var að prufukeyra nýja braut var ekki keypt á hana lögleg mæling heldur var GPS mæling látin duga og eitthvað hefur skolast til við merkingu á snúningspunktum. Farið verður vandlega yfir þessi mál og gerðar ráðstafanir til að slíkt endurtaki sig ekki að ári.
Allar ábendingar varðandi brautina og umgjörð hlaupsins eru vel þegnar og hvetjum við hlaupara til að senda okkur línu með því að smella á "fyrirspurn" hér til vinstri á síðunni.


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning