Skráning er hafin
föstudagur 10.jún.11 12:43 - Lestrar 631
Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í Akureyrarhlaupið á hlaupasíðunni (hlaup.is). Hægt verður að skrá sig þar fram til kl. 20:00 miðvikudaginn 29. júní. Einnig verður hægt að skrá sig í Átaki daginn fyrir hlaup milli kl. 16:00 og 18:00. Athugið að skráningu lýkur kl. 20:00 daginn fyrir hlaup og ekki verður hægt að skrá sig á keppnisdag eins og verið hefur. Keppnisgögn verða afhent í Átaki milli kl. 18:00 og 19:30 á keppnisdag.



