Fréttir

Líka boðið upp á 5 km hlaup

Ákveðið hefur verið að fjölga vegalengdum í Akureyrarhlaupi Íslenskra verðbréfa og bjóða líka upp á 5 km hlaup. 5 km hlauparar leggja af stað á sama stað og tíma og aðrir hlauparar og hlaupa sömu leið í byrjun en í stað þess að hlaupa út Drottningarbraut og snúa við hlaupa þeir tvo hringi á eyriinni. Tímataka verður í 5 km hlaupinu eins og öðrum vegalengdum og keppt í þremur aldursflokkum karla og kvenna, 15 ára og yngri, 16-49 ára og 50 ára og eldri.


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning