Leiðréttir tímar í hálfu maraþoni
laugardagur 1.nóv.08 13:55 - Lestrar 1071
Athugun á tímatöku og brautarmælingu í hálfu maraþoni leiddi í ljós að brautin var 21,61 km að lengd og klukkan fór af stað 16 sek. áður en hlauparar voru ræstir. Við höfum því umreiknað tímana og birtum nú tvo tíma á hálfmaraþonhlauparana. Fyrri tíminn er tíminn sem tók að hlaupa 21,61 km og er það tíminn sem áður var birtur að frádregnum þeim 16 seknúndum sem röng tímamælling hafði bætt á alla. Seinni tíminn er uppreiknaður tími á réttu hálfu maraþoni, þ.e. sá tími sem hlauparar hefðu hlaupið hálfa maraþonið á miðað við þann meðalhraða sem þeir hlupu 21,61 km.



