Leiðrétt úrslit
miðvikudagur 19.sep.07 21:08 - Lestrar 715
Nokkrar ábendingar hafa borist um tíma og úrslit í Akureyrarhlaupinu og hafa því verið gerðar leiðréttingar á úrslitunum. Sigríður Einarsdóttir sem var önnur kvenna fannst ekki í fyrstu yfirferð á flögutímunum en kom í ljós við nánari leit og átti mínútu betri tíma en áætlað hafði verið, eða 1:35:33. Einhverjir einstaklingar höfðu villst á milli flokka hjá okkur en eru nú að við teljum allir komnir á sinn stað.



