Fréttir

Akureyrarhlaup KEA 2010

Boðið verður upp á þrjár vegalengdir í Akureyrarhlaupi 2010, hálft maraþon, 10 km og skemmtiskokk. 

Ræsing og endamark verður frá Líkamsræktarstöðinni Átaki og fara allir þátttakendur fyrst hring um Eyrina. Eftir hring þar fara lengri hlaupin suður Drottningarbraut og til baka sömu leið en skemmtiskokkið í mark við Átak. Hlaupið fer allt fram á sléttlendi og því þægileg leið fyrir alla hvort sem þeir eru langhlauparar að reyna við persónuleg met eða ungir og upprennandi snillingar í barnavagni með hund í bandi! 

Verið er að ganga frá kortum yfir leiðirnar og koma þau inn á næstu dögum. 



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning