Fréttir

Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa 2011

Ungmennafélag Akureyrar og Íslensk verðbréf hafa gert með sér styrktarsamning vegna Akureyrarhlaups 2011. íslensk verðbréf eru aðalstyrktaraðili hlaupsins og ber hlaupið nú heitið Akureyrarhlaup íslenskra verðbréfa. UFA sér eins og áður um undirbúning og framkvæmd hlaupsins og allur ágóði af hlaupinu rennur til barna og unglingastarfs félagsins.

Að þessu sinni verður hlaupið á fimmtudagskvöldi og aðeins verður boðið upp á tvær vegalengdir 10 km hlaup og hálft maraþon (21,1 km). Rás- og endamark er við líkamsræktarstöðina Átak og er hlaupið um eyrina og fram í Eyjafjörð svo hlaupaleiðin er marflöt og vænleg til góðra afreka.

Hlaupið verður haldið 30. júní og hefst kl. 20:00. Hlaupið markar upphaf stórrar íþróttahelgar á Akureyri, þar sem ungir sem aldnir keppa í fótbolta á Pollamóti Þórs og N1-mót KA og á laugardeginum halda nágrannar okkar í UMSE Þorvaldsdalsskokkið.

Hlaupið í ár er það tuttugasta í röðinni, en hlaupið var fyrst haldið sumarið 1992.



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning