Velkomin/n

Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa

Íslensk verðbréf eru aðalstyrktaraðili Akureyrarhlaupsins 2011
Ungmennafélag Akureyrar sér um framkvæmd hlaupsins
Allur ágóði af hlaupinu rennur til barna og unglingastarfs UFA

Nýjustu fréttir

  • Góð þátttaka í Akureyrarhlaupi

    Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa fór fram í gærkvöldi og voru þátttakendur 130, sem er heldur meira en undanfarin ár.

    Í 5 km hlaupi kom Ásdís Káradóttir fyrst í mark á 22:29, önnur kvenna var Brynja Björg Bragadóttir og þriðja var Líney Elíasdóttir. Annar í mark og fyrstur karla var Einar Ingimundarson á 22:47, í öðru sæti í karlaflokki var Vilhelm Ottó Biering Ottósson, sem er aðeins 9 ára gamall, á 23:13 og þriðji var bróðir hans Hermann Biering Ottósson á 24:04.

    Í 10 km hlaupi kom Stefán Viðar Sigtryggsson á 35:33, annar karla var Helgi Sigurðsson á 39:33 og þriðji var Arnar Aðalgeirsson á 39:49. Önnur í mark í 10 km hlaupi og fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á 39:03, önnur kvenna var Birna Björnsdóttir á 41:45 og þriðja var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 44:50.

    Í hálfmaraþoni kom Geir Jóhannsson fyrstur í mark á 1:29:59, annar var Sigurður Ingvarsson á 1:30:03 og þriðji var Þröstur Már Pálmason á 1:34:56. Fast á hæla honum kom fyrsta konan Sigríður Einarsdóttir á 1:35:14, önnur kvenna var Gunnhildur H. Georgsdóttir á 1:45:54 og þriðja var Ingibjörg Halldórsdóttir á 1:51:44.

    Sigurvegarar í öllum vegalengdum hlutu vegleg verðlaun frá Sportveri/Asics, Líkamsræktarstöðinni Átaki og Strikinu.

    Hér má sjá tíma allra sem hlupu.

    Ábendingum um úrslit og/eða hlaupið má koma til Rannveigar á netfangið rannodd@hi.is


  • Hægt að skrá sig til kl. 23

    Skráningarfrestur á hlaupasíðunni hefur verið framlengdur til kl 23:00 í kvöld.

  • Fjölskylduafsláttur

    Til að koma á móts við fjölskyldur í formi veitum við sérstakan fjölskylduafslátt af skráningargjöldum. Greitt er fullt verð fyrir fullorðna, 1000 kr. fyrir fyrsta barn en frítt fyrir önnur börn. Tilboðið miðast við foreldra og börn þeirra undir 18 ára aldri og þarf að skrá sig í Átaki miðvikudaginn 29. júní til að fá afsláttinn. Athugið að við erum ekki með posa svo það þarf að greiða í reiðufé.

  • skráning fer vel af stað

    Skráning í Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa fer vel af stað og nokkur fjöldi hlaupara hefur nú þegar skráð sig til leiks. Við hvetjum aðra til að slást í hópinn og skrá sig hið fyrsta í gegnum hlaupasíðuna -eða í Átaki á miðvikudaginn. Við vekjum sérstaklega athygli á 5 km hlaupinu sem er vegalengd sem flestir ráða við. Passleg vegalengd fyrir stálpaða krakka, skokkara og auðvitað líka fyrir sprettharða hlaupara. Keppt er í þremur aldursflokkum í 5 og 10 km. 15 ára og yngri, 16-49 ára og 50 ára og eldri en tveimur aldursflokkum í hálfmaraþoni 16-49 ára og 50 ára og eldri.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning